Leó Ólason skrifar í ágúst 2015 um Kaupstaðirnir keppa

Fyrir hálfri öld eða veturinn 1964-65 má halda því fram með kannski svolítið léttvægum rökum að einhverra dómi að Siglfirðingar hafi stimplað sig inn sem gáfuðustu íbúar þessa lands. Það gerðist þá um veturinn í geysivinsælum útvarpsþáttum sem útvarpað var á sunnudagskvöldum og nefndust "Kaupstaðirnir keppa". Birgir Ísleifur Gunnarsson og Guðni Þórðarson stjórnuðu þáttunum og leikarinn góðkunni Gunnar Eyjólfsson var kynnir. 

Keppnin var útsláttarkeppni og kepptu kaupstaðirnir þeirri röð sem hér segir: 

  1. 18. nóv. 1964 Hafnarfjörður og Kópavogur.
  2. 29. nóv. 1964 Neskaupstaður og Seyðisfjörður.
  3. 13. des. 1964 Keflavík og Vestmannaeyjar.
  4. 03. jan . 1965 Húsavík og Siglufjörður.
  5. 17. jan. 1965 Akranes og Ísafjörður.
  6. 31. jan. 1965 Akureyri og Reykjavík.
  7. 14. febr. 1965 Hafnarfjörður og Neskaupstaður.
  8. 28. febr. 1965 Ísafjörður og Vestmannaeyjar.
  9. 14. mars 1965 Akureyri og Siglufjörður.
  10. 28. mars. 1965 : Hafnarfjörður og Vestmannaeyjar.
  11. 11. apríl. 1965 Sauðárkrókur og Siglufjörður. 

Þann 2. maí 1965 kl. 20.45 var svo komið að úrslitakeppninni milli Hafnfirðinga sem sigrað höfðu lið Vestmannaeyja og Siglfirðinga sem borið höfðu Sauðkræklinga ofurliði. Þar höfðu Siglfirðingar betur og sá sem þetta ritar gleymir ekki hinni rafmögnuðu spennu sem ríkti meðal bæjarbúa, enda þá orðinn næstum tíu ára og eyrun límdust hreinlega við útvarpið meðan á útsendingunni stóð. 

Í kjölfarið fylltust bæjarbúar auðvitað stolti yfir hinum frábæra árangri sinna manna og liðsmennirnir sem staðið höfðu sig svo vel, voru auðvitað ekkert annað en hetjur í augum okkar sem til þeirra þekktu. Þegar þarna var komið sögu hafði Benedikt kennt mér heila þrjá vetur í Barnaskóla Siglufjarðar og ég hafði alla tíð litið mjög upp til hans sem kennara, en eftir þetta breyttist hann í huga mér í eins konar hálfguð og vitsmunaveru sem var af einhverju allt öðru kalíberi en venjulegt gat talist. 

Auðvitað voru hinir keppendurnir settir í sama flokk, en Benedikt var sá eini þeirra sem ég þekkti vorið 1965. Það átti svo eftir að breytast í 12 ára bekknum þegar Hlöðver kenndi okkur krökkunum og við bárum svolítið óttablandna virðingu annars vegar fyrir honum sem skólastjóra og hins vegar fyrir gáfumanninum úr sigurliðinu.  

MOGGINN SAGÐI SVO FRÁ Þ. 14. MAÍ 1965 

Á sunnudagskvöldið 2. maí, lauk vinsælasta skemmtiþætti vetrarins: "Kaupstaðirnir keppa". Sigruðu þá Siglfirðingar Hafnfirðinga og urðu þar með sigurvegarar í þessari keppni og hljóta í verðlaun ókeypis flugfar til og frá Höfn, svo og uppihald þar í nokkra daga. Þessi kaupstaðakeppni er ein snjallasta hugdetta, sem þeir hafa fengið árum saman, útvarpsmenn. Hún hefur áreiðanlega glætt áhuga á útvarpinu vítt og breitt um landið, einkum meðal yngra fólks. Má þó segja, að efnið hæfði öllum aldursflokkum, sem útvarpsefni. 

Ingvar Gí 

ÞJÓÐVILJINN sagði líka frá úrslitunum sem var auðvitað ekkert undarlegt, því það má jafnvel halda því fram með ágætum rökum að hann hafi á vissan hátt átt sína fulltrúa í sigurliðinu. 

Gera má ráð fyrir að færri hafi hlustað á fréttir, veðurfregnir og íþróttaspjall Sigurðar Sigurðssonar sem voru næstu liðir útvarpsins þetta kvöld en oft áður, því sigurvíman hefur eflaust verið nokkra stund að renna af mönnum. 

En Siglfirðingar höfðu þó ekki alveg yfirgefið þennan eina ljósvakamiðil landsins þetta kvöld, því dagskránni lauk með danslögum sem Siglfirðingurinn Heiðar Ástvaldsson valdi.  

Á myndinni hér fyrir ofan sem Steingrímur Kristinsson tók, er hið magnaða sigurlið Siglfirðinga: Frá vinstri eru Pétur Gautur Kristjánsson fulltrúi sýslumanns, Benedikt Sigurðsson kennari og Hlöðver Sigurðsson skólastjóri. Sérstaka athygli vekur auðvitað pípa Péturs sem hann skildi nánast aldrei við sig, en á þessum tíma þótti ekkert tiltökumál að reykt væri nánast hvar sem var. 

Í aðdraganda keppninnar er sagt að maður nokkur hafa átt erindi við Pétur á heimili hans. Hann fannst hvergi í fyrstu, en að lokum uppgötvaðist verustaður hans með þeim hætti að reykur sást liðast upp fyrir brúnina á risastórum bókastafla sem hann var á bak við. Mun þá Pétur hafa verið að undirbúa sig fyrir keppnina.

Leó R.Ó. 

Myndir frá keppninni,  voru teknar af Halla Nonna og Steingrími.