Tengt Siglufirði
Nýja Bíó hefir undanfarna daga sýnt myndina "Quo Vadis".
Aðalhlutverkið, Nero, vitfirringinn í hinu rómverska keisarasara leikur karakterleikarinn Emil Jannings af mikilli snilld.
Fólk ætti ekki að láta ónotað tækifærið til að sjá þessa mynd, ef nokkur tök eru á, því þar fæst rétt lýsing á því villta munaðarlífi sem yfirstéttirnar lifðu og lifa enn í dag.
Myndin sýnir einnig betur en nokkuð annað þær ógnir og hörmungar sem fasismi og einræði hefir í för með sér.
Áhorfendur fyllast viðbjóði og skelfingu að horfa á alla þá grimmd, ofsóknir og pyntingar sem beitt er við kristna menn af blóðhundum Neros, en fullvíst er, að viðbjóðurinn yrði ekki minni ef bíógestum væri gefið tækifæri á að sjá þær kvalir og pyntingar sem jafnaðarmenn, kommúnistar og Gyðingar hafa orðið að þola af blóðhundum Hitlers í "þriðja ríkinu" .
Myndin verður sýnd í kvöld kl, 8½.
----------------------------------------------------------
Quo Vadis? Þessi mynd um Nero var framleidd árið 1924, og er Ítölsk af upprunna.
Nánari upplýsingar um myndina er hægt að nálgast á: HÉRNA
Þá er annað sögulegt og athyglivert tengt myndinni. Það er að Nýja Bíó brann mikið er verið var að sýna myndina í síðasta sinná Siglufirði, sunnudaginn 28. Júní 1936
Frásögn blaða af brunanum http://www.sk2102.com/436989617
Meira um brunann: http://www.sk2102.com/436990006 + Frásögn mín (sk) höfð eftir föður mínum sem var að sýna kvikmyndina Quo Vadis