Árið 1939 - Út af ummælum

Einherji, 1. september 1939

Út af ummælum Þorsteins M. Jónssonar í síðasta tölublaði Einherja sendi ég yður hér með staðfestan útdrátt úr reikningum Síldarverksmiðju Siglufjarðarkaupstaðar Rauðku, og bið yður að birta í næsta blaði yðar.

Virðingarfyllst.

Siglufirði, 5. september 1939

Snorri Stefánsson verksmiðjustjóri (sign)

ÚTDRÁTTUR úr reikningum Síldarverksmiðju Siglufjarðarkaupstaðar »Rauðku» fyrir árið 1938 dags. 20. jan.1939.

I. Nettóhagnaður kr. 11.476.51

Snorri Stefánsson framkvæmdastjóri.

Snorri Stefánsson framkvæmdastjóri.

II. Gjöld:

1. Greitt fyrir hráefni kr. 45.111.11

2. Greitt fyrir viðhald kr. 14.621.51

17. Vörugjald af útfluttum vörum, til hafnarsjóðs kr. 2.628.75

18. Vatnsskattur til bæjarsjóðs kr. 1.177.60

19. Greidd leiga til Siglufjarðarkaupstaðar kr. 25.032.77

20. Útsvar til bæjarsjóðs kr. 1.957.25

Réttan tölulegan útdrátt úr reikningum Síldarverksmiðju Siglufjarðarkaupstaðar RAUÐKA fyrir árið 1938, dags. Siglufirði 20. jan. 1939, með endurskoðunaráritun Ó.G.Baldvinsson og K.Dúason, mér sýndum í dag staðfestist hér með. Skrifstofu Siglufjarðarkaupstaðar 5/9 1939

Hjörleifur Magnússon (sign) settur. (Stimpill)

Gjald:Staðfesting kr. 1.40

Stimpilgjald kr. 0.65

Samtals kr.2.05

Tvær krónur 5/100

Verksmiðjustjóri "Rauðku" hefir sent Einherja þennan einkennilega gerða úrdrátt úr reikningum Rauðku árið 1938. Einherji birtir hann fúslega, og einkum ef reikningurinn hefði verið í heilu lagi, svo hægt hefði verið að bera hann saman við reikninga bæjarins og mynda sér um hann rökstudda skoðun.

Þorsteinn M. Jónsson er sem stendur ekki hér í bænum, en mun gera grein fyrir sínu máli síðar hér í blaðinu, en til bráðabirgða óskar Einherji eftir svörum við eftirfarandi spurningum:

Hve miklu hærri upphæð var varið til aðgerða og endurbóta á "Rauðku" 1938 en þeim kr. 14.621,51 sem tilfærðar eru í útdrættinum?

Hversu mikið greiddi "Rauðka" í vexti og afborganir 1938?

Hve mikið afskrifaði "Rauðka"1938 eða lagði í fyrningarsjóð?