Tengt Siglufirði
Siglfirðingur 27.janúar 1948
ÚR BÆNUM (umræðudálkur / fréttir, í blaðinu Siglfirðingur)
Húsbruni.
Mánudaginn þann 19. janúar sl. varð eldur laus í húsinu Aðalgötu 7, * hér í bæ. Húsið er eign frú Önnu Vilhjálmsdóttur sem bjó þar ásamt syni sínum og tveimur dótturbörnum. - Húsið brann algjörlega.
Engu var bjargað af innbúi. Á neðri hæð hússins var bókaverslun Hannesar Jónassonar og geymsla fyrir verslunina Sveinn Hjartarson. Þar brann ekki mjög mikið en skemmdist allt af vatni og reyk. Tjónið var mjög tilfinnanlegt.
Í sambandi við bruna þennan finnst oss rétt, að minna á hversu bíræfin bæjarstjórnin okkar er að leyfa sér að hafa öll hin verðmætu og óbætanlegu skjöl bæjarins með öllu óvarin fyrir eldi í hinu gamla timburhúsi, "Hvíta húsinu." Þarna sást hvað eldurinn er fljótur að eyðileggja og engu var bjargað.
Hvernig færi, ef kviknaði í "Hvíta húsinu", ætli það yrði miklu bjargað af hinum verðmætu skjölum sem þar eru, sem myndi þýða mikið tjón fyrir Siglfirðinga í heild. Bæjarbúar munu, ábyggilega fylgjast vel með því, hvort bæjarstjórnin ætlar sér enn lengur að gera ekki skyldu sína í þessu máli, en það er að koma skrifstofum bæjarins og skjölum hans á óhultan stað.
------------------------------------------------------------------------------
Mjölnir 21 janúar 1948, frétt
Húsbruni.
Aðalgata 7 brennur, Hús Önnu Vilhjálmsdóttur Aðalgata 7 hér í bæ, brann svo að segja til kaldra kola í fyrradag.
Innanstokksmunum og vörulager varð ekki bjargað, enda húsið alelda á örskammri stund.
Eldsupptök ókunn.
----------------------------------------------------------------------------
Einherji 26. júní 1948
HÚSBRUNI.
Nokkru eftir miðnætti s.l. nótt kviknaði í Vetrarbraut 3 (Frón), húseign Halldórs Guðmundssonar. Virtist eldurinn koma upp í þakhæð hússins. Þegar blaðið fór í pressuna var enn ólokið við að slökkva eldinn.
Fólk slapp út á nærklæðum og fátt eitt bjargaðist af húsmunum. 10 til 15 manns munu hafa orðið húsnæðislausir.
---------------------------------------------------------------------------
Siglfirðingur 20 júlí 1948
Eldur í bíl
Laust fyrir kl. 12 á hádegi í gær var slökkviliðið kvatt út. Hafði komið upp eldur í gamalli fólksbifreið úr Árnessýslu, sem hér var stödd.
Bifreiðarstjórinn hafði gengið augnablik út úr bifreiðinni á Hverfisgötu
Var nýbúið að setja bensín á geymi hennar og hafði nokkuð af því lekið niður á götuna þar sem bifreiðin hallaðist nokkuð. Litlir krakkar voru að leik á götunni og voru með eldspýtur.
Þau munu hafa kveikt í bensíninu og læsti eldurinn sig þá þegar í stað í hjólbarða bifreiðarinnar. Bifreiðin skemmdist nokkuð en börnin sluppu ómeidd.
Má það kalla sérstaka heppni að eldurinn skyldi ekki haf leiðst í bensíngeymi bifreiðarinnar, en slíkt hefði valdið sprengingu sem börnum þessum hefði orðið stórhætta af. Þetta atvik ætti að brýna fyrir fólki að láta ekki börn sín vera með eld að leik, því alltaf er hættulegt þegar óvita börn ná í eldspýtur.
Vanist því að geyma slíkt þar sem börn ná til. Reynslan er of dýrmætur kennari til að taka ekki tillit til fræðslu hennar.
---------------------------------------------------------------------------
Siglfirðingur, 12. ágúst 1948
Kviknar í skipi
LAUST fyrir kl. 3 í gærdag kom upp eldur í skipinu Minnie E.A. 758, sem lá hér við bryggju við S.R.P.
Verið var að gera við vél skipsins og var vélarrúmið opið.
Vélstjórarnir voru uppi og urðu þá varir við reyk er þeim virtist koma úr lest skipsins og opnuðu þeir hana, en um leið gaus eldur upp úr vélarrúminu.
Slökkviliðið var kvatt út, en skipverjum tókst að slökkva eldinn áður en það kæmi á vettvang. Skemmdir urðu litlar sem engar.
Fyrsti vélstjóri kvað sér óskiljanlegt hvað orsakað hafði eldinn.
---------------------------------------------------------------------------
Einherji, í ágúst 1948
Fréttir úr bænum.
Eldur kom upp í vélskipinu Milly s.l. laugardag. Frekar litlar skemmdir urðu, þó brann eitthvað af rúmfatnaði og öðrum fatnaði skipverja.
----------------------------------------------------------------------------
Einherji 6. september, frétt.
Kviknar í síldveiðiskipi
Á þriðja tímanum í nótt varð vart elds í síldveiðiskipinu Ágústu, en það lá við bryggju Óskars Halldórssonar útgerðarmanns. Slökkviliðið kom brátt á vettvang og tókst að slökkva eldinn sem var í vélarrúmi skipsins.
Í morgun var ókunnugt um eldsupptök.
----------------------------------------------------------------------------
Mjölnir 7. september 1949
Kviknar í síldarskipi
Um k1 1,15 í fyrrinótt kom upp eldur í káetu m/b Ágústu RE 115 þar sem hún lá við bryggju Óskars Halldórssonar útgerðarmanns. Var slökkviliðið kvatt á vettvang og tókst mjög fljótlega að slökkva eldinn.
Einn maður var sofandi í káetunni þegar kviknaði í henni. Brenndist hann allmikið á höndum og andliti og liggur nú á sjúkrahúsinu hér. Líður honum nú sæmilega eftir atvikum. Tveir menn sem brutust niður í káetuna til að bjarga honum, brenndust einnig dálítið.
Talið er að kviknað hafi út frá olíukyndingu. Allmiklar skemmdir urðu á káetunni og flest sem í henni var skemmdist eða gereyðilagðist. Einnig skemmdist stýrishús bátsins og klefi inn af því nokkuð af völdum eldsins.
* Aðalgata 7 er í dag, árið 2015, lóðin þar sem "Iðja" er til húsa á Siglufirði, - á móti "Hótel Hvanneyri"