Slæmur hrekkur

Eitt sumarið gekk yfir slæm flensupest með miklum forföllum hjá mannskapnum í verksmiðjunum, þar á meðal á mjölpalli í mjölhúsi SR-46 þar sem ég vann í um 8 sumur frá 16 ára aldri. Það varð til þess að viðkomandi tvær vaktir voru sameinaðar í eina vakt, og unnið allan sólarhringinn.

Það var Vilhjálmur Guðmundsson tæknilegur framkvæmdastjóri sem kom þessu á eftir bón til okkar sem ekki höfðum fengið pestina, um að vera á vakt allan sólarhringinn en skipta með okkur tækifærum til að sofa á staðnum á vaktinni og biðja aðstandendur okkar að færa okkur mat í vinnuna, sem var gert. 

Þetta var raunar allt auðfengið. Samtals vorum við tveimur fleiri en á venjulegri vakt og því auðvelt að skiptast á um að sofa á vaktinni vitandi það að vera á næturvinnukaupi allan sólarhringinn eins og Vilhjálmur hafði lofað okkur á meðan þetta ástand varði sem entist að vísu ekki nema í rúmlega fjóra sólarhringa.

Vilhjálmur Guðmundsson - Ljósmynd: Kristfinnur

Vilhjálmur Guðmundsson - Ljósmynd: Kristfinnur

Menn voru að vísu þreyttir, því ekki áttu allir auðvelt með svefn þó þeir lentu í svefnpásu og voru því sumir nokkuð slappir þegar á leið. Þar á meðal ég á þriðja sólarhringnum. Ég hafði ekki sofið mikið í vel á annan sólarhring þó svo ég hefði notað allar mínar hvíldarpásur.

Ég hafði lagst til svefns í ofan á pokabúnt stór og mikil, sem innihéldu hver um sig um eitt þúsund poka, og einnig voru þar ofan á dreifðir tómir strigapokar (mjölpokar) til notkunar jöfnum höndum. Þetta var staðsett aðeins til hliðar við mjölpallinn. Ég hafði dottið út af mjög fljótt sögðu strákarnir og sofið í eina þrjá tíma þegar komið var að því að vekja mig samkvæmt áætlun.

Aðferðin sem þeir félagar mínir notuðu til þess var vægt til orða tekið ógnvænleg.
Á meðan ég svaf á bakinu föstum svefni, sennilega með opinn munninn, höfðu þeir saumað mig fastan í pokabúntin tvö sem ég lá á. Búntin hvert um sig sennileg um 500 kg.

Hægt og rólega létu þeir (hann) „í hæfilegu magni,“ leka vatn úr stórri vatnsfötu yfir andlit mitt. Ég gat mig hvergi hreift. Ég vissi ekki hvar ég var, hvort ég væri að drukkna eða hvað, algjörlega út úr heiminum súpandi hveljur og sá ekki neitt í rökkrinu sem þarna var.

Það var ekki fyrr en rétt áður að fatan tæmdist að ég heyrði hlátur strákanna óljóst í gegn um vatnsniðinn, að ég áttaði mig hvað raunverulega var í gangi.
Ég var að hugsa um að gera mótleik gagnvart þeim, en undir niðri var ég svo reiður að það mistókst að láta þá halda að liðið hefði yfir mig eða jafnvel drukknað.

Þá setti hljóða þegar þeir sáu svipinn á mér, þeir horfðu á mig og voru á báðum áttum hvað gera skyldi. 

Ég held það hafi verið þá sem þeir áttuðu sig á því að þetta var sennilega aðeins of langt gengið.

Í þessu kom Eyþór Baldvinsson (frá Enni) sem einnig hafði verið í svefnpásu annarsstaðar. Hann hafði vaknað við hlátur og öskur strákanna. 

Hann hélt fyrst að eitthvað mjög alvarlegt hafði skeð, en áttaði sig svo á því hvað var í gangi, þar sem hlátur varð yfirgnæfandi. 

Hann kom svo til mín í flýti og skar mig lausan. Hann stumraði yfir mér og fór að spyrja. Ekki veit ég hvað ég hefði gert hefði Eyþór ekki komið þarna á þessari stundu. Sá sem hélt á vatnsfötunni lagði hana frá sér og gekk sneiptur til sinna verka. 

Ég var lengi að jafna mig á þessari martröð og átti mjög erfitt með að fyrirgefa vinnufélögum mínum, þeim sem stóðu að „tilræðinu“ 

En þegar leið á daginn og ég hafði hugsað minn gang. Þá gerði ég mér grein fyrir að þetta hefði skapast útfrá svefngalsa, sem stundum var sagt að kæmi upp í fólki eftir langa vöku og hefði komið þessu öllu af stað án þess að vera hugsað til enda. 

Svo var ég sjálfur ekki alsaklaus af hrekkjabrögðum og átti hrekki skilið. Þó svo að eftir á, að mati allra félaga minna, þá hafi þetta verið aðeins of gróft hrekkjabragð. 

Þeim var fyrirgefið eins og öllum hinum hlekkjunum sem ég hefi orðið fyrir sem voru margir á þessum árum.

En mörgum vikum eftir þennan atburð, fékk ég heima í rúmi, martraðir sem tengdust drukknun. Það var jafnvel enn verri upplifun en þegar atvikið sjálft átti sér stað í mjölhúsinu áður. 

Ég hefi þó engum sagt frá þeim hluta sögunnar fyrr en þessi skráning hér.

Það skal tekið hér fram, að þrátt fyrir mjög marga og algenga hrekki sem starfsmenn SR framkvæmdu, þá þekki ég engin dæmi þess að þeir hrekkir hafi verið gerðir að illgirni eða eineltis.
Það voru allir hrektir, meir að segja bæði flokkstjórar (eins og ég þarna) og verkstjórar, fáir sluppu, nema þeir elstu og viðkvæmir.

Seingrímur Kristinsson