Tengt Siglufirði
Húsið var í upphafi sagt heita Hvanneyrarbakki, ásamt fleiri húsum, sem kennd voru við Bakka, hús sem á þeim tíma voru norðan við Hvanneyrará.
Húsið byggði Axelina Sogge ásamt manni sínum, Sölva Valdimarssyni, árið 1935. Þetta var einnar hæða steinsteypt hús.
Síðar keyptu Þjóðverjinn Heimbert Betke, (síðar nefndur Herbert Pálsson, en Íslensk lög skylduðu hann til að breyta nafni sínu) og kona hans Svava Betke húsið.
Betke eins og hann var ávalt kallaður var vinsæl persóna og starfaði sem verkstjóri hjá síldarsöltun Hafliða Hf, -
Betke byggði árið 1959 við norðurenda hússins, eina hæð og kjallara, með aðstoð sonar síns Arnars. (Örra)
Seinna keyptu húsið, Axel Schiöth og kona hans Birgitta Árnadóttir og síða, eftir að þau fluttu frá Siglufirði, seldu þau húsið.
Steingrímur Kristinsson og kona hans Guðný Ósk Friðriksdóttir keyptu húsið árið 1968. Þau létu einangra húsið klæða og með "Garðastáli" og bjuggu þar til 29. ágúst 2012, er þau Guðný og Steingrímur flutti á Dvalarheimilið Skálarhlíð) --
Húsið var rúmu ári síðar selt bónda úr Eyjafirði, sem hugðist skipta húsinu í tvær íbúðir og hafa það í lausaleigu til ferðamanna.
Þau áform gengu ekki eftir, en húsið hefur verið í leigu annað slagið síðan. Enginn virðist í dag í ágúst 2018 vera skráður þar til heimilis. Samkvæmt ja.is - Þó er eitthvað líf þar inni annað slagið, miðað við bíl á bílastæðinu ofl.