Tengt Siglufirði
Ránargata 15 Siglufirði
Húsið við Ránargötu 15 á Siglufirði, byggði Karl Dúason fyrir foreldra sína Eugeniu
Jónsdóttur Dúa Kristján Grímsson
Þetta hús var brotið niður, einhvern tíma eftir árið 1965 +/-
þar stendur nánast á
sama stað nýtt hús, en nú hefur Þessu húsastæði verið breitt í Túngötu 31b og viðkomandi svæði sitthvoru megin ekki nefnt vera við Ránargötu.
Ég man óljóst eftir að Sæmundu Dúason og kona hans bjuggu þarna á efri hæðinni og á neðri hæðinni Emil Andersen - Síðar bjó þar Björn Einarsson ásamt konu sinni. Ekki man ég eftir fleirum, en ég
held mig fara rétt með að síðustu not á húsinu, sem þá hefði lengi staðið ónotað og ekki talið íbúðahæft, verið notað sem vorgeymsla á vegum
Vöruflutninga Hilmars Steindórs.
sk
Kort frá fjallabyggd.is -- Húsið nr. 2 er Pálshús, á rauða ferningnum húsið Mjóstræti 1 (2ja hæða steinhús sem faðir minn Kristinn Guðmundsson byggði 1933) 31b þar var áður Ránargata 15 - Nr. 14 var Pólsjörnubragginn - 29b það hús var nefnt Kambur og nr. 29 var bensínstöð allra þáverandi olíufélaga. - Húsið nr. 33 þar bjó Þorkell Benónýsson, f. 15.9. 1920, d. 6.1. 1993, og kona hans Margrét Brands Viktorsdóttir, f. 28.9. 1922, d. 29.12. 2009. Síðar Þorvaldur Guðmundsson Deplum og kona hans Kristín - Þá síðar Kolbrún Eggertsdóttir sem lést 10. júlí 2011