Tengt Siglufirði
Það sama má segja um Snorra og Valla, Þeir voru nánast eins og eineggja tvíburar.
Þeir áttu mikið sameiginlegt og fóru oftar en ekki saman í land þegar komið var til erlendra hafna. - Oft voru þeir í samráði með hrekki sína, sem voru allir saklausir, en hnitmiðaðir.
Snorri var rafvirki um borð, en slíkt var nauðsynlegt, sérstaklega þegar síld var sótt á fjarlæg mið. Rafmagnsbúnaðurinn um borð var mjög flókinn. Talsvert flóknari en um borð í venjulegum skipum. Fyrstu tvö árin eða svo, áttaði útgerðin sig ekki á því að rafvirki var ekki bráðnauðsynlegur yfir vetrartímann í siglingunum.
Eftir það var rafvirki aðeins um borð á síldarvertíðinni.
Snorri hefur mörg undanfarin ár stundað fiskútflutning og fleira í Vestmanneyjum. Annað slagið sér maður honum bregða fyrir á Siglufirði, en það er sjaldan. Snorri hefur ávalt haft mikið að gera.