Tengt Siglufirði
Morgunblaðið - 28. janúar 2003
Olga Betty Antonsdóttir húsmóðir
fæddist á Akureyri 26. janúar 1929.
Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 17. janúar síðastliðinn.
Foreldrar
hennar voru Jón Anton Árnason sjómaður frá Ytri-Haga á Árskógsströnd, f. 26.10. 1905, d. 12.3. 1948 og Pálína Valgerður Oddsdóttir, sem vann við hótel- og þjónustustörf,
frá Minni-Bakka í Hólshreppi í Skálavík, f. 10.1. 1907, d. 20.11. 1984.
Þau giftu sig 1927 og hófu búskap sinn í Árnahúsi í Hrísey, en fluttu
til Siglufjarðar um 1944. Systkini Bettýjar eru:
Betty giftist 6. janúar 1951 Páli Gestsyni skipstjóra frá Siglufirði, f. 13.6. 1926.
Foreldrar hans voru Gestur Guðjónsson skipstjóri frá Ási í Þelamörk,
f. 22.3. 1893, d. 9.8. 1963, hann ólst upp í Hrísey, og Rakel Sigríður Pálsdóttir frá Siglufirði, f. 13.6. 1903, d. 6.10. 1980.
Betty og Páll eignuðust sjö börn:
Útför Olgu Bettýjar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Nú hverfa þær ein af annarri, alþýðuhetjurnar, sem fæddust á fyrsta þriðjungi síðustu aldar. Fólkið, sem háði hina hörðu stéttabaráttu kreppuára. Kynslóðin, sem lagði grunninn að Íslandi nútímans. Við, sem komin erum fram yfir miðjan aldur sjáum æ oftar á bak okkar nánustu ættingjum og vinum. Þeir sem átt hafa fastan sess í hjörtum okkar og lífi eru að týnast burt einn af öðrum.
Þótt margt hafi verið skrifað um byltinguna sem varð á lífskjörum Íslendinga á fyrri hluta 20. aldar, er margt ósagt enn. Það þótti ekki í frásögur færandi, þótt bændur, sjómenn og verkamenn kæmu tíu börnum á legg, jafnvel fleirum. En auðvitað var það botnlaus þrældómur þessarar kynslóðar innan veggja heimilanna og úti í atvinnulífinu, sem skóp okkar auð. Hlutur kvenna í þessu ævintýri hefur verið stórlega vanmetinn, þótt ýmislegt hafi verið dregið fram í dagsljósið á allra síðstu árum.
Á meðan „hetjur hafsins“ mokuðu upp þorski og síld, sem gerði Íslendinga ríka, voru aðrar hetjur í landi sem stóðu í flóknum heimilisrekstri, sem hagspekingar nútímans og gæðastjórnunarmenn hefðu gott af að kynna sér. Vinnsla aflans í frystihúsum og á síldarplönum var einnig á þeirra könnu, og síðast en ekki síst, uppeldi barnanna.
Olga Betty Antonsdóttir greindist með krabbamein sl. sumar, og nú nokkrum mánuðum síðar er hún dáin. „Ég vildi ég ætti tímavél og gæti ferðast fram í tímann þegar hægt verður að lækna þennan ljóta sjúkdóm, þá myndi ég bjóða henni ömmu með í vélina,“ sagði lítill sonur minn grátandi, þegar hann frétti lát ömmu sinnar. Hennar Bettýjar er sárt saknað af eiginmanni, börnum, barnabörnum og langömmubörnum og okkur öllum, sem þekktum hana vel.
Hún stóð fast með sínu fólki alla tíð og ól honum Páli sínum 7 börn, sem hún hugsaði um á meðan Palli var á sjónum að veiða fisk. Þau bjuggu á Siglufirði, Raufarhöfn og á ýmsum stöðum í Reykjavík með barnahópinn, en síðast á Seltjarnarnesi, þar sem ég kynntist fjölskyldunni fyrir 30 árum. Löngu síðar urðu þau tengdaforeldrar mínir. Betty var gamansöm, vel lesin og höfðingi heim að sækja. Þetta áttu þau hjónin sameiginlegt, þó að öðru leyti væru þau talsvert ólík.
Páll vildi ef til vill hafa strangari tök á hlutunum, en hún var nú ekki að láta smáatriðin þvælast fyrir sér. Saman áttu þau 52 ár. Það var sjálfsagt ekkert, sem hann Palli hefði ekki gert fyrir konuna sína, eins og glögglega kom í ljós eftir að hún veikist, þegar hann vék aldrei frá henni. Nú fara þau ekki fleiri ferðir saman norður til Hríseyjar. Og ekki heldur suður á bóginn, til heitu landanna, þangað sem þau fóru svo oft eftir að börnin uxu úr grasi. Þau kunnu vel við sig í sólinni.
Nú er hún Betty komin til stóru sólarlandanna, þar sem áreiðanlega er tekið vel á móti alþýðuhetjunum íslensku. Þórhallur Sigurðsson. Í dag fylgi ég þér til grafar, elsku Betty mín. Okkur er ekki ætlað að vera samferða lengur hérna megin. Þegar við kynntumst fór ég eins og fleiri stelpur úr Kópavogi að hanga með strákum nokkrum úr vesturbænum. Um helgar vorum við eins og klíka, leigðum spólur eða hlustuðum á tónlist inni í herberginu hans Gests, jafnvel 15 fullorðnir krakkar á 15 fermetrum.
Þú varst ekki í klíkunni, nei, þú varst mamma hans Gests. Sú sem átti alla þessa þolinmæði, með honum Palla þínum auðvitað. Ég hafði augastað á Gesti og fljótlega eftir að við tvö náðum saman gerði ég honum ljóst að ef honum dytti í hug að skilja við mig, þá flytti ég heim til hans því að á þessum árum var oft ansi stormasamt í minni fjölskyldu og ég frekar aum á sálinni, en á þínu heimili, Betty mín, var mér alltaf vel tekið. Þú reyndir aldrei að grafa upp hvað gengi á, vissir bara um leið hvort allt væri í lagi eða ekki.
Ég held að ég hafi aldrei formlega flutt inn til ykkar, en ég lá á beddanum hans Gests og las undir stúdentspróf og mér þótti svo vænt um þig og Palla. Þið studduð svo við bakið á okkur þegar ég hélt áfram að læra og voruð ánægð fyrir okkar hönd þegar við keyptum okkar fyrstu íbúð, það er allavega alveg á hreinu að við fluttum formlega út. Samt höfum við nú eiginlega verið með aðra löppina inni síðan, svona eins og hin börnin, tengdabörnin, barnabörnin og undir það síðasta barnabarnabörnin í heimsóknum í félagsheimilinu í Tjarnarbólinu.
Það er erfitt að slíta sig frá þeim stað sem manni líður vel á. Það er sárt að sjá á eftir þér, hafðu þökk fyrir allt og allt. Linda Guðlaugsdóttir. Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja.“ Elsku amma mín, það er komið að kveðjustund. Og við kveðjum þig með sorg og trega í hjarta. Þú barðist mjög hetjulega við þennan illvíga sjúkdóm, mun lengur en við fáum að vita.
Aldrei heyrði ég þig kvarta, heldur hafðir þú miklu meiri áhyggjur af þeim sem þér þótti vænt um. Ég vil þakka þér þau ár sem við áttum með þér. Ég mun ávallt muna eftir þér sem elskulegri ömmu minni. Megir þú hvíla í friði. Allt var kyrrt og hjótt öllu lokið allt of fljótt. Þú fórst oss frá í dag englar guðs sungu lag. Morgunn varð sem niðdimm nótt hjá guði þú sefur sætt og rótt. Við rúm mitt stendur ásýnd þín elsku besta amma mín. Þú strýkur hár mitt, kyssir kinn svo ást og frið ég finn. Af þér streymir mikill kraftur og svo hverfur þú aftur. (S.G.) Þín Signý. Elsku Bettý amma mín.
Núna ertu farin á vit annarra ævintýra og ég veit að þér líður betur þar. Fyrir mér er þetta samt ennþá allt svo óraunverulegt. Það eru svo ótal margar góðar minningar sem koma upp í huga mér. Ekki grunaði mig að aðfangadagur ætti eftir að vera síðasta skiptið sem að við hittumst. Það kvöld var alveg yndislegt kvöld. Þú varst svo hress og alsæl að hafa okkur öll hjá þér. Ég hef alltaf sótt mikið í það að vera hjá þér og afa enda var alltaf svo gott að koma til ykkar og þið rosalega dugleg að sinna mér og styðja mig í því sem ég tók mér fyrir hendur.
Það veitti mér mikla ánægju að fá að kynnast þér elsku amma mín og fá að eyða þessum tíma með þér. Það sem við gátum setið við eldhúsborðið þitt og spjallað bara tvær um alla heima og geima. Þú varst með endalausan fróðleik sem oft hefur nýst mér vel. Það er skrítin tilhugsun að geta ekki lengur rennt vestureftir í Tjarnarbólið til ömmu og fengið sér kaffi og nokkra fróðleiksmola með því. Ég elska þig elsku amma mín og sakna þín sárt. Megi Guð og allir hans englar geyma þig þangað til við hittumst á ný. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mun hverfa úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund. Það geislar af minningu þinni. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Elsku Palli afi, megi Guð gefa þér styrk í sorg þinni. Málfríður Anna (Malla). Elsku amma Bettý, það tekur mig sárt að þú ert farin. Ég sakna þín voðalega mikið, ég veit að þú vildir að ég færi út aftur þrátt fyrir að þú værir mikið lasin og mér finnst erfitt að hafa verið svona langt í burtu daginn sem þú kvaddir. Ég vildi óska að stundirnar með þér hefðu verið aðeins fleiri ... en það er bara eigingirni í mér. Síðustu stundirnar með þér voru yndislegar, það var gott að koma til þín með bleikar rósir, sitja við rúmstokkinn hjá þér og halda í hönd þína, þú brostir svo blítt og ég sagði þér sögur af ferðum mínum.
Ég man svo vel orðin sem þú sagðir við mig rétt áður en ég fór aftur til London. Ég var að kveðja þig og þú sagðir: „Ég vona að öll ævintýrin þín endi vel.“ Mér þykir svo vænt um þessi orð, þú varst yndisleg amma og þú varst vinur minn. Ég man svo vel eftir stundunum okkar þegar ég var lítil og ég kom á hverjum morgni áður en ég fór í skólann, við settum í okkur rúllur, púsluðum og eyddum löngum stundum saman í eldhúsinu með kveikt á útvarpinu að spjalla um lífið og tilveruna.
Svo vinkaðir þú mér úr svefnherbergisglugganum þegar ég lagði af stað í skólann og þú stóðst við gluggann alveg þangað til að ég hvarf úr augsýn. Ég er svo þakklát fyrir að eiga svona góðar minningar um þig. Ég kveiki á kerti á hverju kvöldi þér til heiðurs, sem ilmar eins og bleiku rósirnar. Ég kveð þig með sorg í hjarta en það veitir mér huggun að ég veit að þú ert á fallegum stað í faðmi ástvina sem fóru á undan þér. Þú ert bak við fjöllin þar sem sólin sefur og ég veit að þér líður vel og ég sé þig þar seinna, elsku amma mín.
Þín Þórunn Antonía.------------------------------------------------
Bettý Antonsdóttir húsmóðir fæddist á Akureyri 26. janúar 1929. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 17. janúar 2003.
Foreldrar hennar voru Jón Anton Árnason sjómaður frá Ytri-Haga á Árskógsströnd, f. 26.10. 1905, d. 12.3. 1948 og Pálína Valgerður Oddsdóttir, sem vann við hótel- og þjónustustörf, frá Minni-Bakka í Hólshreppi í Skálavík, f. 10.1. 1907, d. 20.11. 1984.
Þau giftu sig 1927 og hófu búskap sinn í Árnahúsi í Hrísey, en fluttu til Siglufjarðar um 1944.
Systkini Bettýjar eru:
Bettý giftist 6. janúar 1951 Páll Gestson skipstjóri frá Siglufirði, f. 13.6. 1926.
Foreldrar hans voru Gestur Guðjónsson skipstjóri frá Ási í Þelamörk,
f. 22.3. 1893, d. 9.8. 1963, hann ólst upp í Hrísey, og Rakel Pálsdóttir (Sigríður) frá Siglufirði, f. 13.6. 1903, d. 6.10. 1980.
Bettý og Páll eignuðust sjö börn:
1) Anton Valur Pálsson, (Anton Pálsson) f. 15.3. 1951,
Börn hans: Árni Valur, móðir hans Ágústa Hrefna Lárusdóttir,
Inga Birna, móðir hennar Sigurbjörg Björnsdóttir. Maki Ingu, Birgir Rúnar Jónsson,
dóttir þeirra Emilía. Með sambýliskonu sinni Ragnheiður Eggertsdóttir á Anton Valur
dótturina
2) Rakel Guðný Pálsdóttir, (Rakel Pálsdóttir) f. 24.10. 1953, maki Gunnlaugur Ingimundarson, börn þeirra tvö,