Björgvin Sigurður Jónsson rafvirki

Björgvin Sigurður Jónsson rafvirki fæddist í Suðurgötu 30, Siglufirði, 9. febrúar 1942.

Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni Siglufirði 22. desember 2014.

Foreldrar hans voru  Unnur Helga Möller, f. 1919, d. 2010, og  Jón Ólafur Sigurðsson, f. 1918, d. 1997. 

Systur hans eru

Steinunn Kristjana Jónsdóttir, f. 1943,

Brynja Jónsdóttir, f. 1944, og 

Salbjörg Engilráð Jónsdóttir, f. 1947. 

Björgvin Jónsson

Björgvin Jónsson

Bræður hans samfeðra eru 

Guðmundur Kristinn Jónsson, f. 1959, og

Sigurður Jónsson, f. 1972, móðir þeirra var Valdís Ármannsdóttir, f. 1930, d. 2014.

Björgvin kvæntist 25. maí 1963 Halldóra Ragna Pétursdóttir, f. 12 febrúar 1942. 

Foreldrar hennar voru  Mundína Valgerður Sigurðardóttir, f. 1911, d. 2000, og Pétur Baldvinsson, f. 1909, d. 1995. 

Systkin Halldóru Rögnu eru

Ásbjörn, f. 1937, d. 2001,

Hanna Guðrún, f. 1939,

bróðir samfeðra

Tómas f. 1930, d. 1963. 

Börn Björgvins Sigurðar og Halldóru Rögnu eru: 

1) Halldóra Salbjörg Björgvinsdóttir, f. 8. október 1960, maki Ólafur Þór Ólafsson, f. 24 júní 1959,

börn þeirra eru

a) Stella Dóróthea Ólafsdóttir, f. 1983,

sambýlismaður Ómar Þór Lárusson, f. 1977,

börn þeirra eru 

Einar Björgvin, f. 2010, og 

Elmar Óli, f. 2013,

sonur Ómars Þórs er

Arnar Freyr Ólafsson, f. 1998. 

b) Sólveig Sara, f. 1993, 

c) Selma Dóra, f. 1995, unnusti Sölvi Fannar Sigmarsson f. 1991.

Sonur Halldóru Salbjargar frá fyrra sambandi er Björgvin Davíð Björnsson, f. 1976, d. 1992, faðir hans er Björn Valur Gíslason, f. 1959. 

2) Jón Ólafur Björgvinsson, (Nonni Björgvins) f. 20. janúar 1962, unnusta Kristín Sigurjónsdóttir, f. 7. febrúar 1958.

Synir Jóns Ólafs eru

a) Pétur Friðrik, f. 1989,

unnusta Josefin Nyman, f. 1987. 

b) Sölvi Þór Jónsson, f. 1993.

Móðir þeirra er Guðbjörg S. Jóhannesdóttir, f. 1963. 

3) Sigurður Tómas Björgvinsson, f. 23. mars 1963.

Börn Sigurðar Tómasar eru

a) Sunna Mist Sigurðardóttir, f. 1986, sambýlismaður Hjálmar Már Kristinsson, f. 1986.

Sonur Sunnu er 

Gabríel Máni Ómarsson, f. 2010, faðir hans er Ómar Örn Ómarsson, f. 1984. 

b) Teitur Ingi Sigurðsson, f. 1989,

unnusta Silja Rut Jónsdóttir, f. 1981, 

c) Dagur Bjarki Sigurðsson, f. 1995. Móðir þeirra er Jenný Inga Eiðsdóttir, f. 1963. 

d) Atli Björn, f. 1999, 

e) Unnar Steinn, f. 2003.

Þeirra móðir er Birna Björk Árnadóttir, f. 1970.

Björgvin Jónsson byrjaði ungur að hjálpa til og vinna ýmis störf við Söltunarstöðin Hrímnir sem faðir hans rak um árabil á Siglufirði. Hann var verkstjóri í lagmetisiðjunni Siglósíld 1964-1977. Hann keyrði um tíma vöruflutningabíla og leigubíla í hjáverkum. 

Björgvin lærði rafvirkjun og útskrifaðist frá Iðnskóla Siglufjarðar 1979. Hann starfaði sem rafvirki hjá Rafveitu Siglufjarðar 1982-1991 og Rarik ohf. 1991-1997.

Hann starfaði hjá Rafbæ í námi sínu og svo aftur 1998-2009. Síðar vann hann ýmis sérverkefni hjá Raffó ehf. 

Björgvin var handlaginn mjög og mikill grúskari, vinnusamur svo að eftir var tekið. Öll þau verkefni sem hann tók að sér leysti hann með sóma. Hann hafði meðal annars áhuga á bílum, ættfræði, frímerkjum og ferðalögum innanlands. 

Ath. sk - Einnig var Björgvin lengi verkstjóri hjá Niðurlagningaverksmiðjunni Sigló Síld á Siglufirði