Tengt Siglufirði
Hafsteinn Hólm var fæddur í Leifahúsi á Siglufirði 3. febrúar 1935.
Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu, Eyrargötu 29, að morgni þriðjudagsins 28. september 2010.
Foreldrar Hafsteins voru hjónin Jóhanna Sesselja Jónsdóttir húsmóðir fædd 26. mars 1905, dáin 7. júní 1989 og Þorleifur Hólm
múrari fæddur 26. maí 1910, dáinn 18. apríl 1988.
Þau hjón eignuðust sex börn. Elstur var
Árið 1965 hóf Hafsteinn sambúð með Sigurbjörg Helga Jónsdóttir f. 10. desember 1933.
Þau eignuðust fjögur börn.
Hafsteinn og Helga bjuggu allan sinn búskap að Eyrargötu 29.
Þegar Hafsteinn var á fyrsta ári fluttist hann ásamt foreldrum sínum að Hvanneyrarbraut 17 á Siglufirði og bjó þar þangað til hann flutti í sitt eigið húsnæði á Eyrargötunni. Hann stundaði hefðbundið barna- og gagnfræðaskólanám á Siglufirði.
Sem ungur maður var hann til sjós á ýmsum togurum yfir vetrarmánuðina en kom í land á vorin til að sinna sauðburði og öðrum þeim verkum sem gera þurfti. Síðar vann hann almenna verkamannavinnu, m.a. hjá Bæjarútgerð Siglufjarðar, S.R. og hjá Þormóði ramma þar sem hann lauk starfsævi sinni 67 ára.
Þegar starfsævinni lauk sneri Hafsteinn sér alfarið að búskapnum sínum, en hann átti alltaf nokkrar kindur sem hann hugsaði um af mikilli alúð og natni. Á síðari árum hafa þrjár kisur átt heimili sitt á Eyrargötunni og átti hann alltaf tíma og þolinmæði fyrir þær, hvort sem var á nóttu eða degi.
Hafsteinn var mikill Siglfirðingur og vildi hvergi annars staðar vera. Hann vildi helst aldrei fara það langt frá firðinum sínum fagra að hann kæmist ekki heim í kaffi og til að sofa.