Tengt Siglufirði
Skarphéðinn Guðmundsson fæddist í Haukadal í Dýrafirði 31. júlí 1922. Hann lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar 9. des. 2003.
Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Katrín Jónsdóttir og Guðmundur Jón Jónsson. Þau eru bæði látin.
Skarphéðinn ólst upp í stórum systkinahópi en þau voru átta systkinin. Elstur var
Eru þrjú þeirra á lífi, Kristjana búsett í Bandaríkjunum, Guðjón í Reykjavík og Stefán á Sauðárkróki.
Skarphéðinn kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Fanney Vernharðsdóttir, hinn 14. febrúar 1948.
Þau eignuðust fimm börn:
Útför Skarphéðins fór fram frá Siglufjarðarkirkju.
Það er oft erfitt að kveðja góðan mann og á það svo sannarlega við núna. Er mér efst í huga þakklæti fyrir að vera svo lánsamur að hafa átt þig fyrir föður. Það er og verður alltaf órjúfanlegur kafli í minningu minni allur sá yndislegi tími sem ég átti með þér.
Faðir minn var alla tíð mikill fjölskyldumaður og lagði ríka áherslu á að hlúa vel að fjölskyldu sinni og styðja börnin í leik og starfi.
Eftir að ég eignaðist fjölskyldu var alveg sama hvenær við þurftum á barnapössun að halda, hann var alltaf tilbúinn að koma og passa dætur okkar. Faðir minn vann hin ýmsu störf, bæði á sjó og í landi.
Árið 1955 hóf hann störf hjá Siglufjarðarbæ og vann þar í þrjátíu og fjögur ár sem vélamaður. Í frístundum smíðaði hann báta handa sonum sínum og barnabörnum og átti ófá handtökin í garðinum sínum en hann var mikill blómamaður. Þegar við Elín byggðum húsið að Hafnartúni 18 kom faðir minn yfirleitt eftir vinnu og hjálpaði okkur við ýmislegt í byggingunni.
Á heimili foreldra minna kom frænka mín Margrét hinn 2. nóvember 1963. Hún var lömuð og rúmföst og önnuðust þau hana í tæp þrjátíu og sex ár en hún lést fyrir fjórum árum. Fyrir alla þá umönnun sem hann lagði á sig vegna Margrétar vil ég þakka sérstaklega.
Meðan heilsan leyfði fór hann í göngutúra bæði kvölds og morgna. Einn var sá draumur pabba og það var að komast á heimaslóðir í Dýrafirði áður en hann félli frá. Það tókst honum og móður minni að gera fyrir nokkrum árum er Sigríður systir mín og Sveinn maður hennar fóru með þau í nokkra daga vestur. Síðustu þrjú árin hrakaði heilsu föður míns það mikið að hann var af og til á sjúkrahúsinu.
Að lokum vil ég þakka læknum og starfsfólki Sjúkrahúss Siglufjarðar góða umönnun.
Elsku pabbi, farðu í guðs friði.
Þinn sonur, Guðmundur Skarphéðinsson.