Tengt Siglufirði
Fædd 8. september 1913 Dáin 24. febrúar 1989
Amma á Sigló er dáin. Við þessa frétt fylltist hugur minn minningum af þessari einstöku konu. Margar þessar minninga standa fyrir mér ljóslifandi. Sem dreng var mér það mikil eftirvænting að fara á Sigló og dvelja þar hluta úr sumri hjá ömmu.
Það sem einkenndi hana mest var hið létta lundarfar og atorka. Síldarárin og ljóminn kringum þau áttu stóran þátt í að móta hennar líf og skapgerð. Sjálfsagt eru tunnustæðurnar sem fóru í gegnum hendur hennar ekki ófáar.
En eftir bjartan dag kemur kvöld. Og þó að aldurinn færist yfir, meðþeim kvillum sem honum geta fylgt, þá stendur minningin um góða og örláta konu uppúr þoku hversdagsleikans.
Hún lést eftir fárra daga legu á sjúkrahúsi þann 24. febrúar síðastliðinn. Sár er söknuðurinn, en megi minning hennar lifa.
Ómar Norðdahl Arnarson