Herbert Pálsson – Bethke

Hann var fæddur 31 desember 1909 og lést í Reykjavík 12. október 1988 78 ára að aldri. Hann eins og margir fleiri fluttu frá Siglufirði eftir að síldin hvarf, eða er afli og söltun síldar var ekki til skiptana, þeirra mörgu söltunarstöðva sem á Siglufirði voru á þeim tíma.

Bethke, Heimbert Paul Willy, verkstjóri á Siglufirði, fæddur í Þýskalandi. Hann tók sér nafnið Herbert Pálsson, eftir að hann hafði öðlast íslenskan ríkisborgararétt samkvæmt kröfu laga frá Alþingi. Samhliða var konu hans Svava Bethke á samat tíma (og lögum) veittur íslenskur ríkisborgararéttur (Nöfnin skráð: 790. Frumvarp til laga, í febrúar 1953) Hverjar forsendur voru fyrir því, þekki ég ekki, en Svava Bethke var fædd 3. maí 1911 á Íslandi

Bethke þekkti ég vel, en hann var lengst af verkstjóri og skrifstofumaður hjá söltunarstöðinni Hafliði hf.  - Bethke var mjög vel liðin á meðal fólks á Siglufirði og flestir hinna eldri mun eftir kátínu brosi hans, sem hann oftast var með.

Hann var tekinn fastur á stríðsárunum og fluttur til Bretlands nauðugur vegna þjóðernis hans, en kom heim aftur til konu og barna eftir stríð. Bethke var mjög málgefinn og kátur náungi og átti það til að taka duglega til  máls í umræðum undirmanna sinna þegar hlé gafst frá önnum við síldina. 

Fyrstu kynni mín af Bethke urðu þegar ég var unglingur, þau kynni þróuðust fljótt vegna tíðra ferða minna á svæði umhverfis hús hans og nágrenni þar sem "bestu guttarnir" Bakkaguttarnir áttu heima, þar á meðal voru synir hans tveir, Örn og Dither.

Valbjörn Þorláksson vinur minn og skólabróðir bjó þá ásamt foreldrum í bragganum niður á Bakka og voru því margar ferðir mínar í norðurbæinn kringum hús Bethke við Hvanneyrarbraut 80.

Mikið var leikið og  flækst um fjörur og fjöll á ströndinni og einnig leikur við sjóinn á svæðinu, ma. mikið um sund í sjónum fyrir neðan hús hans. 

Svo og auðvitað þegar ég fullorðnaðist vegna við vinnu hjá honum á kvöldin og um helgar í síld á planinu sem hann stýrði.

Bethke var mjög málgefinn og talaði oft mikið um einföldustu málefni og hafði skoðum á öllum málum og lét þær skoðanir vel í ljós.  Gallinn var bara sá að það var alls ekki góð íslenska sem hann talaði, það voru fáir sem skildu hann vel. Hann talaði bæði hratt og blandaði gjarnan mikið þýskum orðum saman við setningar. 

Alltaf brosti Bethke jafnvel þó illa gengi. Hann hafði ávalt af, að klára erfið verk með hörku og brosi til skiptis. Þessi orðaflaumur hans var þekktur og brosað af en Bethke aftur á móti gerði sér litla grein fyrir því að ekki var auðvelt stundum að skilja hann.

Margar sögur gengu um Bethke tengdum þessum orðaflaumi hans, og höfðu gaman að í góðu, eins og fyrr segir. þá var hann mjög vinsæll félagi og lipur í samskiptum vað aðra sem minna þekktu hann.

Eitt haustið fékk Bethke ásamt fjölda Siglfirðinga fengu slæma flensu. Fólk fékk hæsi á háu stigi og átti erfitt með að tala. Ekki voru mörg árangursrík lyf til við svona flensu. Margir drukku svokallaða brjóstdropa og eða hóstasaft (sumir nefndu kogara) við þessum kvilla. það virkaði á suma eða öllu heldur; þessar veigar minnkaði sársauka í hálsi.

Neðan ritaða sögu sagði Bethke mér sjálfur, er ég sat við hlið hans á tunnu á vinnustað hans á Hafliðplaninu, en beðið var eftir síldarskipi sem væntanlegt var með fullfermi til söltunar, einn sunnudagsmorgun árið 1960

Bethke hafði fengið  mjög slæma flensu og gat vart talað á þeim tíma. Ég hafði spurt hann um hvort sagan sem gekk um bæinn af honum, Ólafi lækni og Schiöth  væri sönn. Hann brosti breitt og sagði fúslega frá

Gefum Bethke orðið: 

"Ég var búinn að reyna bæði brjótsdropa og einhverjar mixtúrur, meðal annars koníak, en ekkert dugði. Ég ákvað að fara til Ólafs vinar míns og fá hjá honum eitthvað krassandi við þessu en ég  hafði vart getað talað í nærri viku.

Ég fór á stofu hans og beið þar um stund þar til röðin kom að mér. Hann hlustaði mig skoðað upp í mig og þreifaði hálsinn á mér. 

Hann sagði að þetta væri ekkert hættulegt bara þessi flensuskratti sem gekk í bænum ég skildi bara fara í Apótekið og fá mér hóstamixtúru. Brjóstdropar væru eiginlega það besta sem hann gæti ráðlagt mér.

Ég var ekki sáttur við þessa niðurstöðu og ég gekk hart að honum um að hann hlyti að geta gefið mér réseft upp á eitthvað sem virkaði betur.  
Hann sagði nei, en ég gafst ekki upp en Ólafur "gafst upp" og sagðist hann ætla að skrifa réseft ef ég lofaði að segja engum frá því. 

Aðeins Schiöth mætti sjá réseftið. Hann ætlaði að hringja í hann og láta hann vita. Hann lagði áherslu á það að aðeins Schiöth fengi réseftið, en það var skrifað á latínu. 

Ég fór niður í Apótek og spurði um Schiöth, hann hafði brugðið sér frá en var væntanlegur fljótlega. Ég beið í dágóða stund. 

Þegar Schiöth loksins kom, leit hann á mig alvarlegum augum og sagði að Ólafur hefði hringt í sig, og beðið sig að afgreiða mig. Ólafur hafði sagt Schiöth lauslega frá því sem stæði í réseftinu. 

Schiöth benti mér á að koma inn fyrir og sagði alvarlegur: Lofaðu mér að sjá seðilinn.

Ég rétti honum réseftið. Hann las vandlega en spurði svo hvort ég kynni að lesa latínu. Ég hristi höfuðið og hann endurtók orð Ólafs. Þú mátt ekki segja nokkrum manni frá þessu.

Ég veit eiginlega ekki hvort ég get afgreitt þetta sagði Schiöth, því réseftið lýsir nokkuð sterkara hér, en það sem hann sagði mér í símanum. Við getum báðir misst réttindi okkar ef upp kemst“ sagði Schiöth, blá alvarlegur. 

Ég var ekki viss um hvernig ég ætti að bregðast við en tuldraði hásum rómi hvort þetta meðal mundi virka. 

Ég er nokkuð viss um það, farirðu eftir því sem á lyfseðlinum stendur. Svo sagði Schiöth: Hér stendur greinilega: 

Bethke, þú átt að halda kjafti í tvo til þrjá daga, þá batnar þér." 

Annað stendur ekki hér, sagði svo Schiöth.

Ég var á báðum áttum, hvernig ég ætti að bregðast við þessum skilaboðum frá vini mínum Ólafi lækni, lesin upp af öðrum vini mínum Aage Schiöth. 

En brosglott apótekarans kom mér til að hlæja þó erfitt væri vegna eymsla í hálsinum. Frá Apótekinu fór ég svo með enn eitt brjóstdropaglasið Í VIÐBÓT og talaði svo sem minnst næstu daga.  

Ekki skyggði þessi hrekkur þeirra Ólafs og Schiöth á vináttu þessara heiðursmanna. Einhverjar fleiri útgáfur af þessari sögu fóru á milli manna. En ofanritaða söguna sagði Bethke mér sjálfur eins og fyrr segir. Þá sátum við á sitthvorri síldartunnunni á Hafliðaplaninu. En beðið var eftir að fullhlaðinn síldarbátur kæmi til söltunarstöðvarinnar. 

Myndir í eigu Ljósmyndasafns Siglufjarðar, ljósmyndarar: Kristfinnur Guðjónsson mynd af;  Aage R Schiöth og Steingrímur af; Bethke og Ólafi.

XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

Nafn:

Herbert Pálsson

Mynd:

Heimili:

Álfheimum 56

Staða:

Síldarkaupmaður

Staður:

Reykjavík

Fæðingardagur:

31-12-1909

Kirkjugarður:

Dánardagur:

12-10-1988

Reitur:

Þ-797

Jarðsetningardagur:

18-10-1988

Annað:

Herbert Pálss- Heinbert Bethke.

Aldur:

78 ára

XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

Herbert Pálsson - Bethke

Ólafur Þ Þorsteinsson læknir

Aage Schiöth lyfslai