Anna Júlíana Guðmundsdóttir

Anna Guðmundsdóttir frá Syðsta-Mó í Haganesvík, húsfreyja á Siglufirði og í Ásum fæddist 29. júlí 1901 og lést 30. desember 1985.

Foreldrar hennar voru Guðmundur Jónsson bóndi, trésmiður og skipstjóri, f. 17. maí 1877, d. 2. apríl 1959, og kona hans Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja, f. 14. september 1880, d. 11. júní 1956.

Maður Önnu var  Sveinn Þorsteinsson skipstjóri og hafnarvörður á Siglufirði, f. 15. desember 1894, d. 7. október 1971.

Þau Sveinn og Anna bjuggu á Siglufirði, fluttust til Eyja um 1970.
Þau bjuggu hjá Guðlaugu dóttur sinni í Vöruhúsinu, en síðan í Ásum, en fluttust til Þorlákshafnar. Anna flutti síðan til Reykjavíkur.

Börn þeirra ;

Anna Guðmundsdóttir - Ljósm: Kristfinnur

Anna Guðmundsdóttir - Ljósm: Kristfinnur

  • Guðlaug Sveinsdóttir húsfreyja, f. 16. maí 1925, d. 19. febrúar 2004.
  • Jón Sveinsson,  f. 2. febrúar 1928 - d. 13. mars 1995
  • Snorri Sveinsson, látinn, og
  • Magnús Sveinsson, maki Eva Sóley Rögnvaldsdóttir.