Jóhann Guðjónsson, múrari - byggingafulltrúi

Feykir - 1984

Jóhann Guðjónsson byggingafulltrúi látinn Jóhann Guðjónsson, byggingafulltrúi frá Sauðárkróki, lést 30. nóvember 1984, 67 ára að aldri.

Jóhann var fæddur á Nýlendi i Hofshreppi 17. nóvember 1917, sonur Guðjóns Jóhannssonar bónda þar og Ingibjargar Sveinsdóttur. Jóhann stundaði nám við Bændaskólann á Hólum og Iðnskólann á Siglufirði en þar var hann kennari 1942-48.

Árið 1949 fluttist hann til Sauðárkróks og gerðist kennari við Iðnskólann og skólastjóri 1963-79. Jóhann var múrarameistari að iðn og hann var formaður prófnefndar múrara frá 1952. í stjórn Iðnaðarmannafélags Sauðárkróks var hann 1950-81.

Hann var iðnfulltrúi Norðurlands vestra frá 1967 og byggingafulltrúi á Sauðárkróki frá 1965. Jóhann verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju n.k. laugardag.

Feykir vottar aðstandendum Jóhanns dýpstu samúð.

Jóhann Guðjónsson - Ljósmynd Kristfinnur

Jóhann Guðjónsson - Ljósmynd Kristfinnur