Oddný Jóhannesdóttir

Andlát: Frú Oddný Jóhannesdóttir, Túngötu 39, Siglufirði, lést hinn 12. apríl 1972
Oddný var á 72. aldursári er hún lést. f 1901 d. 1972

Foreldrar: Jóhannes Guðmundsson bóndi að Grímsá í Hrafnagilshreppi  og Kristín Bjarnadóttir f. 22. desember 1869 d. 24. október 1934 -

Maður hennar var Guðmundur Sigurðsson verkstjóri.
Hann var bóndi á Deplum og í Nesstaðarkoti í Stíflu í Fljótum.
Hann flutti til Siglufjarðar árið 1924, stundaði um tíma kennslu 6-7 ára krakka í lestri, einnig prófdómari hjá Barnaskóla Siglufjarðar.

Hann réðist snemma til Síldarverksmiðja ríkisins og starfaði þar sem verkstjóri lengi vel. Hann var mikill áhugamaður um félagsmál og gegndi trúnaðarstörfum í verkamannafélaginu Þróttur á Siglufirði.


Börn Guðmundar og Oddnýjar voru:

Hjónin Oddný Jóhannesdóttir og Guðmundur Sigurðsson

Hjónin Oddný Jóhannesdóttir og Guðmundur Sigurðsson

1) Kristín Guðmundsdóttir f. 31. Ágúst 1927 – maki Ríkarður Jónsson, fyrrv. framkvæmdastjóri Meitilsins í Þorlákshöfn, lést árið 1974. 

2) Katrín Guðmundsdóttir f. 29 október 1932  d. 14. Nóvember 2007 Katrín giftist 28.6. 1952 maki Páll Gíslason, útgerðarmaður og fiskverkanda, f. 3.9. 1929.  Foreldrar hans voru Gísli Jónsson verkstjóri, f. 8.12. 1899, d. 15.10. 1974, og Ólöf Kristinsdóttir húsfreyja f. 24.9. 1902, d. 24.5. 1996.

3) Svandís Guðmundsdóttir, Siglufirði f. 18. júní 1935  - d. 27. desember 1993 Árið 1978 gekk hún í hjónaband með Pétur Pálsson verkamaður á Siglufirði. Pétur er einn af sex systkinum. Foreldrar hans voru Páll G Pétursson sjómaður á Hofsósi og Sigríður Kristín Gunnarsdóttir, ættuð úr Fljótum.

(Samtíningur)