Geirlaug Jónsdóttir

Morgunblaðið - 23. febrúar 2012

Geirlaug Jónsdóttir fæddist á Suðurgötu 24 á Siglufirði 19. september 1930.
Hún lést á Hrafnistu, Boðaþingi, Kópavogi 31. janúar 2012.
Útför Geirlaugar fór fram frá Digraneskirkju 8. febrúar 2012. --

  • Leiði þig gæfunnar gullfagra hönd,
  • glóbjarta sveiga þér hnýti úr rósum,
  • hvert sem að liggur þín leið yfir lönd
  • þér leiðbeini Guð með skínandi ljósum.

(N.N.)

Elsku Gagga frænka. Við systkinin í Víðihvammi þökkum þér samfylgdina í gegnum lífið. Þú tókst alltaf vel á móti okkur, hvar sem þú bjóst, og gott var að koma til þín. Þér var margt til lista lagt og öll sú gullfallega handavinna sem eftir þig liggur ber því fagurt vitni.
Við biðjum góðan Guð að umvefja og styrkja Birgi frænda, Sólveigu og Nönnu Láru.

Birna, Sigríður, Jón Orri og Benedikt Þór
-----------------

Geirlaug Jónsdóttir -- Ljósmynd Krsitfinnur

Geirlaug Jónsdóttir -- Ljósmynd Krsitfinnur

  • Gott er sjúkum að sofna,
  • meðan sólin er aftanrjóð,
  • og mjallhvítir svanir syngja
  • sorgblíð vögguljóð.
  • Gott er sjúkum að sofa,
  • meðan sólin í djúpinu er,
  • og ef til vill dreymir þá eitthvað,
  • sem enginn í vöku sér.

(Davíð Stefánsson)

Anna Jóna, Lára og Guðmundur Heimisbörn.